|
|
 |
 |
 |
|
|
 |
  Hér verður hægt að fylgjast náið með ýmsum þeim málum sem upp koma varðandi verndun hafsins og auðlinda þess.
|
 |
 |
Ríó +20 – verndun hafsins 15. september 2011 |
Verndun sjávarkóralla, fiskstofna, hvala, sæljóna, og úthafanna sem þekja rúman helming af yfirborði jarðar eru mál sem hreyfa við fólki. Rányrkja, eyðing kóralla, og súrnun sjávar í kjölfar hnattrænnar hlýnunar eru ógnir sem dyljast fáum sem eftir þeim horfa. Sjá grein. |
| nánar -> |
 |
Enn fundað um hvalveiðar í Washington 13. september 2011 |
Á 9. áratug síðustu aldar var sjávarútvegsráðherra tíður gestur í höfuðborg Bandaríkjanna til að útskýra áætlun Íslands um vísindaveiðar á hvölum. Jafnan við 5. mann. Í þessu máli þótti sjávarútvegsráðherrann standa óvenjulega vel í lappirnar en þó var „árangur” fundanna jafnan sá að fækka skyldi veiddum hvölum í þágu vísindarannsókna. Sjá Smugan. |
| nánar -> |
 |
Fundur um mengun hafsins, súrnun og verndarsvæði 2. febrúar 2011 |
mhverfisráðuneytið boðar til opins kynningarfundar um helstu niðurstöður nýrrar skýrslu OSPAR um ástand Norð-Austur Atlantshafsins. Fundurinn verður haldinn í Þjóðminjasafninu við Suðurgötu, föstudaginn 4. febrúar kl. 12:00-13:00. |
| nánar -> |
 |
Icelandic Group sækir um MSC-vottun 26. október 2010 |
Stefán Gíslason, umhverfisfræðingur bendir á að Til skamms tíma hefur MSC nánast verið bannorð á Íslandi. Íslendingar, með LÍÚ og Fiskifélagið í broddi fylkingar, hafa viljað þróa sitt eigið merki, þar sem samtök seljenda setja leikreglurnar í stað þess að eftirláta það hlutlausum aðilum. Sjá blogg Stefáns Gíslasonar. |
| nánar -> |
 |
Sprengja stíflur til að bjarga laxastofni 16. nóvember 2009 |
Tillögum Verndarsjóðs villtra laxastofna (NASF) um framtíðarnýtingu eins víðáttumesta votlendis Evrópu verður fylgt í þaula af frönskum stjórnvöldum. Þau hafa ákveðið að tvær stíflur á vatnasvæðinu, sem eru nálægt Mont-Saint-Michel, frægum ferðamannastað í Normandy, verði fjarlægðar. Sjá frétt visir.is |
| nánar -> |
 |
|
 |
|
 |
© Allur réttur áskilinn 1998-2008, Náttúruverndarsamtök Íslands - Reykjavíkurakademían, Hringbraut 121, 107 Reykjavík - S: 551 2279 Netfang: nsi@mmedia.is |
 |
|